Jæja… fyrir nokkrum mánuðum kynntist ég stelpu…. við erum saman í skóla og vorum alltaf hinir fínustu vinir… svo einn dag varð ég hrifin af henni og fór þá reyndar í alveg hreint rosalega afneitun því ég vildi alls ekki vera hrifin af henni því ég trúði því ekki að hún myndi nokkurn tíman verða hrifin af einhverjum eins og mér en svo stuttu eftir það þá einfaldlega sætti ég mig við það að ég var mjög hrifin af henni og því yrði ekkert breytt í bráð…
Ég eyddi miklum tíma með henni og ég varð alltaf hrifnari og hrifnari af henni og vá hvað við gátum talað og talað og talað og svo kom að því að það var partý heima hjá mér og hún kom auðvitað og þegar við vorum bæði orðin svolítið vel full þá fórum við að kyssast og þá komst ég að því að hún hafði verið hrifin af mér mun lengur en ég hafði verið hrifin af henni… hún gisti hjá mér(ekkert kynlíf) og svo fór hún frekar snemma um morguninn… ég var auðvitað hæstánægður með þetta og var auðvitað bara mjög hamingjusamur en það var bara þangað til ég fór í skólann á mánudaginn… þá fór allt að verða svo skrýtið, við gátum ekki talað saman eins og áður og það varð frekar vandræðalegt í kringum hana… og svo daginn eftir þá hætti hún með mér… þá leið mér auðvitað ömurlega en sætti mig svo sem við það… en við hins vegar ákvoðum að vera en þá vinir en reyndar töluðum við ekkert saman í nokkra daga en svo fór ég aftur að tala við hana og þá auðvitað gátum við talað alveg ótrúlega skemmtilega og alls ekkert vandræðalega saman og þá fann ég það strax hvað ég var en þá hrifin af þessari stelpu og mér finnst það alveg hreint ömurlegt…
Í dag kom einhver strákur og talaði mjög mikið við hana og ég varð alveg geðveikt öfundsjúkur og ég vil ekki vera það… ég vil að hún geri bara það sem hún vill gera, ef hún vill eiga einhverja kærasta þá vil ég bara að hún geri það og ég vil ekkert verða fúll en ég verð það bara samt… og ég vil að hún sé hamingjusöm og ég vil geta hætt að hugsa um hana… í dag fórum við líka nokkur saman út í sjoppu og þá held ég alveg augljóslega að hún hafi séð hvað ég er ótrúlega hrifin af henni, en reyndar er mér alveg sama þótt hún viti það… ég átta mig alveg sjálfur á því að ég á enga framtíð með þessari stelpu…
Þetta var allt bara svo mikill mórall að tvennt fólk sem er bæði mjög hrifið af hvoru öðru byrji saman og svo bara einhvern veginn gengur það ekki upp…
Mér líður allavega ömurlega núna (nema þegar ég er með henni) og mig langar náttúrulega ekki að líða svoleiðis…

Ég veit ekki alveg af hverju ég er að skrifa þetta en kannski er bara gott að koma þessu aðeins út frá sér og svo langaði mér að einhverju leiti að spyrja um ráð frá ykkur ágætu hugarar… reyndar veit ég ekki alveg af hverju ég þarf einhver ráð… ég veit alveg að ég mun ekkert vera með þessari stelpu en oftast hafið þið hugararnir eitthvað gáfulegt að segja um svona mál
Ég heiti ekki gummi (og ekki heldur Guðmundur)…