Vildi bara koma ánægju minni á framfæri þó að ykkur sé örugglega alveg sama ;)
Í gærmorgun byrjaði ég með strák sem ég er búin að vera að hitta síðastliðna 2 mánuði… Og ég er svo ánægð :) Hef aldrei verið í sambandi áður, hef verið frekar óheppin í strákamálum en núna loksins gekk eitthvað hjá mér… Og mér finnst þetta geðveikt skrýtið, að eiga allt í einu kærasta! En þetta er samt góð tilfinning.

Hann var svo sætur þegar hann talaði við mig… Spurði mig hvort ég vildi vera með honum, sagði til dæmis líka að honum fyndist ég falleg bæði að innan og utan og líka að ég væri æðisleg á allan hátt…:D Ég er ekki frá því að þetta sé eitt það fallegasta sem hefur verið sagt við mig :)
En ég er hætt að monta mig…Takk fyrir að nenna að lesa þetta :)
Ég finn til, þess vegna er ég