ég var með strák í rúmlega 6 mánuði og við tókum svona 5 pásur á þeim tíma. ok, núna erum við bara alveg hætt saman og ég virkilega hata hann af því að hann sagði við bestu vinkonu mína að ég væri pirrandi og uppáþrengjandi og hann sagði við mig að honum fyndist pirrandi að ég hringdi í hann og bað hann um að koma til mín. hann var alltaf talandi um hvað hann elskaði mig en svo heyrði ég að hann hafði sagt við vini mína og hans að hann væri bara að nota mig. hvernig getur ein manneskja verið svona hryllilega tillfiningalaus að henni er alveg sama þótt hún særi aðra manneksju svona oft? hann sagði það að honum væri skítsama þótt mér liði illa. ég fatta ekki hvernig það er hægt að vera svona ógeðslega ómerkilegur..hann var svo ómerkilegur við mig að allir hata hann núna eftir það sem hann gerði mér..hann hætti alltaf með mér ef eitthvern vinkona hans, sem bjó út á landi, kom í bæinn. og svo hringdi ég í hann um daginn og þá svaraði stelpa og hún gaf það mjög mikið í skyn að hún væri að sofa hjá honum bara í augnablikinu..var hann svona ómerkilegur eða er ég bara svona klikkuð að halda að hann hafi verið svona ómerkilegur? hvað finnst ykkur?
I'm looking forward to regretting this..