Fyrir sona 8 mánuðum þá byrjaði ég að vinna á vinnustað :P og það var mjög góður vinnustaður og svo eitt sinn var starfsmannafundur og ákveðið að við öll myndum borða saman eftir það.

Svo settist *kalli* við hliðin á mér og vinkonu minni *nönnu* og við byrjuðum að tala saman og töluðum endalust saman, svo fer ég á snyrtinguna og *nanna* kom á eftir mér og spurði mig hvernig mér litist á hann, og mér leist mjöög vel á hann þannig að ég sagði henni það, þá svarar hún mér að hún hafi aldrei séð hann tala sona við stelpu áður og þau hefðu þekkst í mörg ár…

Svo förum við af salerninu og allir voru farnir nánast og við ætlum að fara líka þá sé ég *kalla* og hann biður um númerið og við skiptumst á þeim

Þegar ég vann þarna þá kynntumst við mikið og hittumst utan vinnu, svo eftir 3 manuði þurfti ég að hætta , og þá var sumarið komið og við kynntumst mjög vel og urðum mjög mjöög náin..

Svo kom að því að ég for út í 2 vikur og fannst ekkert smá sárt að kveðja *kalla*,en það tókst og ég skemmti mér vel úti og strákarnir sem að voru þarna voru bara guðdómslegir!! EENN ég hélt af mér afþví að ég hugsaði allan tíman heim til *kalla* og ég gat ekki beðið að komast heim og hitta hann…

Eftir þessar tvær vikur kom heim og hringdi strax i hann og bað hann að hitta mig, hann syndi nánast engan áhuga og lét sem að honum væri allveg sama um mig, ég varð mjöög særð!

Svo liðu vikur og komin mánuður þangað til að við hittumst eða töluðum almennilega saman og þegar við hittumst langaði mig til þess að taka hann að mér og faðma hann , enn við töluðum saman og hann sagði mér að hann væri komin á fast og að þau væru búin að vera saman í 1 mánuð !

Jæja þá kom ég upp með það að við yrðum bestu vinir og hann tók vel í
það!
Við töluðum mikið saman og hann hætti með kærustuni eftir 2 mánuði, gekk ekki…
Og þá hélt ég að ég ætti von, en þá hitti ég og vinkona mín hann eitt sinn og hann varð hrifinn af henni…:l
Hann bað mig um að koma sér á sjens hjá henni og ég gerði það, ég gat ekki neitað ! það er ekki ég…
Svo var eitthvað sem að gekk ekki upp hjá þeim og þau talast ekki við núna,ég veit ekki afhverju!
Ég og *Kalli* urðum jafn náin eins og við vorum, gerðum samt ekkert saman og vorum bara…bestu vinir..!

Svo fyrir sona 2 vikum þá sagði hann mér að hann væri hrifinn af mér og vildi fá annan sjens!
Þá var ég loksins komin yfir hann og sagði honum að hann hafi sært mig og ég vildi ekki fórna vináttuni og að hann væri kanski að miskilja eitthverjar “vina tilfingar sínar til min” hann sagði já liklegast…

Enn þetta var fyrir 2 vikum og jahh..ég er aftur hrifinn af honum :l Og hann er aftur komin í sama farið að sýna mér lítin áhuga , hann er að vinna mikið segjir hann…
Ég veit ekki hvað ég á að gera :/

(Vinsamlegast ekki koma með skítköst, ef að þið hafið eitthvað viturlegt að segja skulið þið tjá ykkur annars ekki. Takk :) )