1. Ég er jafnvel enn þá skotnari í þér núna en fyrst þegar við byrjuðum saman.

2. Það er alltaf gaman að koma þér á óvart með kossi.

3. Þú býrð yfir staðfestu og er traustur eins og klettur sem ég get hallað mér upp að þegar ég þreytist á að reyna að halda mér á floti.

4. Mér fynnst tilhugsunin um að valda þér vonbrigðum eða bregðast þér óbærileg.

5. Enginn hefur elskað mig á sama hátt og þú.

6. Þínir gullhamrar eru mér meira virði en annarra.

7. Lífið væri svo miklu MIKLU erfiðara án þín.

8. Skræku skríparaddirnar þínar koma mér alltaf til að hlægja.

9. Mér fynnst gaman að horfa á þig þegar þú skemmtir þér.

10. Allt er skemmtilegra með þér.

11. Ég geri fátt skemmtilegra en að hrekkja þig – þú lætur alltaf blekkjast.

12. Ég hlæ og brosi miklu meira en ég gerði áður en ég kynntist þér.

13. Jafnvel þegar ég er öskureið út í þig er ég samt alveg bálskotin í þér.

14. Í gegnum þig hef ég eignast nokkra mjög góða, nýja vini.

15. Handtak þitt er þéttingsfast þegar þú heldur í höndina á mér, þá líður mér eins og ekkert geti skaðað mig.

16. Mér fynnst gaman að strjúka yfir hárið á þér.

17. Myndi ég gefa þér síðasta súkkulaðibitann minn? Já, ef þú vildir hann.

18. Ég verð að hafa hemil á mér svo að ég eyði ekki of miklum tíma í dagdrauma um þig.

19. Hver hefur þörf fyrir rafmagnshitapoka sem hefur þig í rúminu hjá sér?

20. Mér fynnst yndilegt þegar þú kissir mig óvænt og upp úr þurru.

21. Lífið er ekki einn samfelldur rósagarður en með þér er auðveldara að eiga við illgresið.

22. Ég vil að þér líði vel; mér líður vel með þér.

23. Ég veit að þú ætlar að láta þetta samband endast. Ég líka.

24. Ég elska þig fyrir að elska mig eins og ég er, skrítin, rugluð og afskaplega ljóshærð.

25. Það eru miklu fleiri en þúsund ástæður fyri því að ég elska þig.
one, two, freddy's coming for you