Jæja, þá er þetta þannig að ég verð að spurja um hjálp.

Eftir eitt samband sem ég var í fyrir svona nokkrum mánuðum síðan þá hefur allt eiginlega bara eyðilaggst. Ef ég reyni að hugsa um að byrja með einhverri stelpu þá líður mér svona undarlega eins og ég vilji ekki vera einn með henni eða eitthvað svona rugl.

Það er ein stelpa sem ég kynntist fyrir svolitlu og ég gæti alveg byrjað með henni ef ég vildi og ef ég myndi þora. Ég þori alveg en það er eitthvað inní mér sem segir að ég geti þetta ekki.

Svo er líka eitt sem ég hef stundum verið að hugleiða að skrifa hérna en mér finnst það svolítið kjánalegt. Ég kann ekki að fara í sleik/slumma.
Það gæti verið málið því þarna stelpan sem ég var með hún fór óvenjulega hratt í þetta og reyndi að slumma mig en ég færði mig frá og kyssti hana á kynnina og svo daginn eftir sagði ég henni að þetta gengi ekki upp því ég væri hrifinn af annari.

Vona að þið séuð með góð svör.
I am a