Hæ hæ

Þannig er að ég kynntist gaur fyrir nokkrum vikum og erum búin að vera rosa góðir vinir,´kúra saman og kjafta í síma daga og nætur, hann rosalega góður við mig og segir fallega hluti við mig en samt erum við bæði búin að gera hvort öðru grein fyrir því að þetta verður engöngu bólfélaga samband engar skuldbindingar. Svo kom að því að við fórum að djamma í sitthvoru laginu og þá byrjaði sms flóðið frá honum og ég svaraði ekki eða svaraði eitthvað leiðinlega :-S

ég hringdi svo í hann daginn eftir og bað afsökunar á þessu og við hittumst aftur og kúrðum saman… og þetta hélt bara áfram að vera svona notó hjá okkur svo núna síðustu helgi þá fórum við að djamma í sitthvoru lagi og þá tók hann við og þessi fáu skipti sem við töluðum saman var hann hundleiðinlegur við mig.. sko mjöööög dónalegur og andstyggilegur, endaði reyndar með að ég sagði honum að hafa ekki samband aftur. Afsökunin hans er sú að þessi helgi hafi verið rugl of mikið fyllerí en það sem ég er að spá í er, á ég að halda áfram að hitta mann sem hefur sagt svona ljóta hluti við mig þó að það sé annað núna?? er alveg lost í þessu. Er nýkomin úr öðru sambandi og er alls ekki tilbúið í samband og heldur ekki að láta fara illa með mig!!
Kveðja Malin