Ég var búin að tala um þennan gaur.. sem að ég var hrifin af og hann hrifinn af mér og sonna.. ýmislegt sem gerðist og svonna.. svo hætti það bara alltíeinu, eða varð eitthvað skrýtinn og sagðist ekki vilja samband og ég spurði hann afhvejru og hann sagði bara veit ekki, bara einhver tilfinning. En sagði að það væri kannski von um það seinna.. ég vissi ekki hvað annað ég ætti að gera nema bara bíða því að ég var virkilega hrifin af honum, svo æðislegur strákur.. Svo tala ég aftur við hann um þessi mál og spyr hann hvað er í gangi og svonna.. þá var hann víst allan tímann bara hrifinn af fyrrverandi.. ég var nú búin að segja frá því hvað ég skildi hann ef hann er ekki tilbúinn í samband því hún fór svo illa með hann.. en.. hann vill hana… og við erum bara vinir..
ég veit ekki hvað ég á að gera eða hvernig ég á að vera.. mér líður bara hálf kjánalega og illa fyrir að bíða..
Margir voru búin að segja mér að bara gleyma þessu en ég var að reyna að sína honum skilning.. svo fór ég að hugsa um þennan þátt með Opruh þar sem að allar afsakanir þýða bara eitt: He's not that into you!
Ömurlegt…