vona að fleiri taki þeirra dæmi.

Ég hef verið að svara allavega tveim til fjórum daglega með vandamál sem þau hafa verið að lenda í, og tel ég það mjög jákvætt hvað fólk er þorið að senda mér boð og tala um sín feimnustu málefni.

Það virðist vera eithvað gott við að geta tjáð sig við ókunnugan mann um það sem liggur manni á hjarta.

Ég vildi bara óska að fleiri myndu þora að skella þessu hérna á korkana í “Vandamál” korkinn með “-Froði” í titillínunni.

En ég skil ósköp vel að fólk vilji hafa sín málefni prívat og persónuleg, sérstaklega ef fólk þekkir þau hér á Huga.

Endilega haldið áfram að senda mér það sem liggur ykkur á hjarta. Ég lofa að halda áfram að gera mitt besta að hjálpa ykkur leysa þau.

Kær kveðja,
Fróðleiksmoli