Já þannig er mál með vexti að ég var búinn að vera með þessari stelpu í ca. 3 mánuði
og allt gekk vel að mínu mati þegar hún segir mér eitt kvöldið þegar ég kem og sæki
hana að ég sé of fullkominn fyrir hana og of góður og það hafi aldrei nenn verið svona
góður við hana áður og að hún elskaði mig og allur sá pakki en samt myndi þetta ekki
ganga lengur, ég tel mig ekki vera mjög heimskan og hvað þá það heimskan að trúa
því að við hefðum þurft að hætta saman, er einhver þarna sem hefur notað sömu
ástæðu og veit hvað þetta virkilega þýðir?