Það hafði samband við mig strákur sem vildi komast að því hvort stúlka hefði áhuga á honum eða ekki.

Með hans leyfi, þá langar mig að deila svari mínu til hans með ykkur:

—-
Að komast að því hvort einhver sé hrifin af sér er oftast ekki einfaldur hlutur, og þarfnast í langflestum aðstæðum (nema maður t.d. nái að frétta það frá vin eða vinkonu) að maður taki smá “áhættu” í því að komast að tilfinningum annarra gagnvart manni.

Hinsvegar eru til mjög “mishættulegar” leiðir í þessum aðstæðum, og ráðlegg ég þér að velja vel hvaða leið þú tekur.

Einnig snýst þetta um að vera naskur að lesa þau merki sem hún sendir þér. Allir senda merki, maður þarf bara að kunna að lesa þau, en á yngri árum, þá er maður kannski ekki sem bestur í því.

Það eru til ýmsar leiðir til að komast að þessu og ég ætla að nefna nokkrar.

Bjóða henni í pool/keilu/kaffihús (mitt uppáhald) eða annað slíkt. Sumum finnst gott að fara saman í bíó, en ég er meira fyrir stað þar sem maður getur spjallað og haft samskipti, heldur en að sitja þögull í nær tvo tíma við hliðina á henni. Þetta er að vísu persónubundið.

Þegar/ef þið farið saman í party/ á djammið, reyna að ná inn sem mestum tíma í að spjalla við hana og sjá bara hvernig hún tekur í það. Reyna svo jafnvel að fá hana til að dansa við þig, og þá ættiru að geta lesið frá henni hvernig hún er að taka í þig.

Mundu samt, að aldrei láta hana finna að hún sé í “aðalfókus” hjá þér. Konur kunna ekki að meta stráka sem sjá ekki sólina fyrir þeim. Þær vilja sjálfstraust og sterkan persónuleika ofar öllu, og sjálfstæði er stór grunnur í þeim málum.

Ég ætla að segja þér hvað ég myndi sjálfur gera, en ég vara þig við að þetta er kannski ekki einfaldasta aðferðin.

Eftir virkilega gott spjall á milli mín og stúlkunnar (þá meina ég meira heldur en svona chatt, þá meina ég kannski eftir klukkustund af skemmtilegum djúpum samræðum) þá myndi ég einfaldlega segja eithvað í þessa átt: “Veistu, mér finnst þú alveg gullfalleg og skemmtileg” og svo bara brosa og horfa í augun á henni. Langflestar stelpur fara hjá sér og jafnvel roðna pínu, því þetta kemur flatt upp á þær.
Það er góður hlutur í langflestum tilfellum. Ef þér tekst að gera þetta án þess að blikka, þá lýturu út fyrir að hafa gífurlegt sjálfstraust (og í raun hefur það í alvöru, því maður þarf gott sjálfstraust til að þora að gera þetta), og það er eitt það sem er mest heillandi í augum kvenna.
Þegar stúlkan hefur annaðhvort svarað þér vandræðalega eða farið hjá sér, þá bætiru við fljótlega á eftir einhverju eins og “langar þig kannski að kíkja með mér á kaffihús í kvöld?”

Ef hún segir já, þá veistu að hún hefur áhuga, því það er greinilegt að þú hefur það, og hún myndi ekki segja já eftir fyrri setningu þína nema svo væri, því þetta er greinilega ætlað sem “stefnumót”.

Ef hún segir hinsvegar nei (oft í formi afsökunar), þá veistu það að það er enginn áhugi til staðar, og þá verðuru bara að þola það, halda haus, brosa og segja eithvað í þessa átt :“Ekkert mál ;) Maður verður að spurja til að vita! :D) og spjalla svo áfram við hana eins og ekkert hafi í skorist.
Það getur verið einstaklega erfitt að halda haus eftir neitun, en það kemur mjög vel út fyrir þig. Stúlkur eiga meira segja til að skipta um skoðun ef þú gerir þetta rétt, því þær fatta stundum eftirá að þú ert mun meira ”cool" heldur en þær héldu í fyrstu ;)

En ég ætla að vara þig aftur við, því þetta er langt frá því að vera einfaldasta leiðin, þótt hún gefi oft bestu niðurstöðurnar. Og þar sem þú ert þetta ungur, þá getur vel verið að þú hafir bara ekki nægilega reynslu af hinu kyninu til að það sé sniðugt fyrir þig að leggja í þetta.

Ég vona að ég hafi náð að aðstoða þig eithvað, og þú getir tekið eithvað að þessu til þín og látið á það reyna.

Endilega leyfðu mér svo að fylgjast með hvernig gekk.

Kær kveðja,
Fróðleiksmoli.