Ég og kærastan mín erum búin að vera trúlofuð í 1 ár núna á sunnudaginn og ég er í smá vandræðum. Ég veit ekkert hvað ég ætti að gefa henni :S Hún á mikið af armböndum og hálsmenum þannig að það er kannski ekki og sniðugt, og ef ég myndi gefa henni hring þyrfti ég að vita hringastærðina og þar af leiðandi fara með hana að mæla og þá myndi hún fatta það :S Svo er ég ekkert alltof efnaður en mig langar samt að gefa henni eitthvað. Einhverjar hugmyndir?