Ég og kærastan mín vorum alltaf svo hamingjusöm þangað til hún fór að fjarlægast mig svo mikið. Núna þá vill hún gera allt sjálf. Ef það er partý er mér ekki boðið því það er eitthvað sem hún vill bara gera ein. Ef að ég býð henni í partý þá er hún of upptekin til að mæta. Mér er ekki lengur boðið í matarboð með fjölskyldunni þótt að öll systkyni hennar taki sinn maka með. Þegar hún hittir mig þá líður mér svo skringilega.. eins og ég sé með samviskubit útaf því að líða vel því að ég veit að um leið og hún fer þá á mér eftir að líða eins illa og mér leið áður en hún kom. Samt segist hún elska mig. En ég Hata hana! hún er ástæðan fyrir því að ég er orðin þunglyndur.. ég er hættur að mæta í skólann og er að falla á öllu.. mætingu og árinu. Varð rekinn úr skólanum. Ég er með alvarlegar sjálfsmorðshugsanir á hverjum degi… allt út af henni! ég elskaði hana svo mikið en núna skil ég ekki af hverju hún lætur svona! hún er búin að aflýsa þremur kvöldum sem að við vorum búin að plana saman og varð síðan reið þegar ég varð sár út af því. Mér finnst eins og hún sé að nota mig. Að hún komi bara þegar henni sýnist. Henni sé alveg sama um mínat tilfinningar því að í hvert sinn sem að ég segi henni eikkvað þá verður hún ótilfinninganæm og byrjar að öskra á mig og hunsa mig. Hún lætur mig ganga á eftir sér endalaust en verður reið ef að hún er með 3 missed calles frá mér yfir daginn því að henni finnst ég vera að stalka hana… hún er hætt að gera hluti með mér. Hún sem gerði allt með mér einu sinni. Við vorum svo hamingjusöm en núna (að hún segir) er það aðeins hún sem að er hamingjusöm. Ef ég reyni að tala við hana þá verður hún reið. Þori ekki að hætta með henni, þori ekki að segja neitt. Drap mig næstum því eitt kvöldið en það mistókst. Mér langar til að hún viti hvað ég er að brenna í helvíti út af henni. Ég hugsa ekki um annað en hana en samt þegar ég hugsa um hana þá get ég ekki hætt að gráta. Af hverju er hún með mér til að láta mér líða illa!? Það versta er að hún veit það ekki einu sinni vergna þess að um leið og ég segi að ég þurfi að tala við hana þá koma bara öskrin, og þá náttúrulega gugna ég. Ég er búinn að fórna öllum vinum mínum fyrir þessa stelpu þannig að ég hef engan til að vera með á meðan hún er í sínum endalausu partýum sem að mér er ekki boðið í. Það eina sem að ég get gert er að láta mér líða illa, og ég er meira segja farinn að taka svefntöflur til að geta sofið til næsta dags án þess að gráta. Ég elskaði hana… en núna HATA ÉG HANA!