hæhæ
ég er 16 ára og var með ákveðnum strák fyrir ca einu til tveimur árum. Hvorugt okkar sagði hinu upp, sambandið bara eiginlega dó. Núna erum við bæði hins vegar búin að þroskast helling og mér finnst hann ennþá ofboðslega fallegur en ég veit ekkert hvað honum finnst um mig. Við höfum voða lítið talað saman síðan við hættum saman en erum samt engir óvinir. Ég væri alveg til í að byrja aftur saman. Hvað á ég að gera?