Hvernig er það með fjarsamböndin? Ég var eitt sinn í fjarsambandi en ekkert of lengi og það var bara fínt en félagi minn er búinn að vera í þónokkuðmarga mánuði í svona fjarsambandi og hann virðist bara vera þunglyndur þegar kellingin er ekki hjá honum eða hann hjá henni. Þetta getur ekki verið heilbrigt! En er það samt ekki oftast þannig með fjarsamböndin að þar sem parið hittist ekkert voða oft þá fái þau leið á þessu og leiti á önnur mið?