Mig langaði bara að deila smávegis með ykkur deginum mínum :)
Ég semsagt mætti í próf kl 10 í morgun og var svo beðin um að taka smávegis pizzu með í bakaleiðinni eftir prófið.

Tekur þá ekki kærastinn minn á móti mér í hurðinni með meters langa Rauða Rós í fanginu handa mér. Ég var svo ekki að búast við þessu þar sem hann er búinn að vera veikur heima alla helgina þetta grey.

En semsagt þessi elska mín var svo góð við mig og langaði mig bara að deila þessu með ykkur.
Vona að ykkar Konudagur verði góður :)

-Bugs