þetta á kannski eftir að verða svolítið væmið og hallærislegt en ég ætla samt að gera þetta, ég ætla að koma með ástarjátningu handa unnustanum mínum :)

Engillinn minn, ég elska þig alltaf og muna alltaf elska þig, ég hugsa um þig allann daginn og hlakka til að sjá þig og fá að kyssa þig og knúsa þig. ég elska þig þegar við förum að sofa og höldumst í hendur þangað til við sofnum. ég elska þig þegar þú vekur mig á hverjum morgni með kossi og heldur fast utan um mig og segir mér hvað ég er falleg nývöknuð. ég elska þig þegar þú syngur þó þú sért versti söngvari í heimi.

Ég elska þig þegar við rífumst og ég er svo pirruð af því að þú ert alltaf í tölvunni. ég elska þig þegar þú kemur alltof seint heim af djamminu og ég verð alveg brjáluð. ég elska þig þegar þú segir mér hluti sem ég hef engan áhuga á en þykist hafa mikið gaman af. ég elska að liggja með þér að horfa á sjónvarpið og gera ekki neitt. ég elska þig þegar við liggjum uppí rúmi og kjöftum þangað til við sofnum.

ég elska að horfa á þig og snerta þig og vita það að þú elskar mig alveg jafn mikið og ég elska þig. :*