Ég er í mestu vandræðum í heimi, ég HELD að ég sé hrifinn af vinkonu minni! En ég get ekki sagt henni það því ég veit ekkert hvað hún gerir, stundum er eins og hún sé hrifin af mér og stundum ekki!!! Málið er að ég get ekki sagt neinum frá þessu, bestu vinir mínir halda að ég hafi engan áhuga á henni og ef þeir vissu það myndu þeir alltaf vera að gefa það í skyn fyrir framan hana að ég væri hrifinn af henni. Síðan get ég ekki sagt bestu vinkonum mínum þetta því þær eru bestu vinkonur hennar! Ég verð að tala um þetta við einhvern því annars brjálast ég. Er búinn að vera að pæla í henni í meira en hálft ár!!!!! Hvað á ég að gera???? Hún er alltaf að biðja mig um að hringja í sig og svoleiðis en ég vill ekki gera það því ég vill ekki að við verðum OF GÓÐIR vinir, því ef það gerist þá eru líkir á því að það gerist aldrei neitt!
Meikar þetta eitthvað sense??????