Sælir hugarar,

Nú ættla ég að vera rosaleiðinlegur og svona vesen, en mig bara langar svo hræðilega að vita suma hluti..

ok, eitt, afhverju segja stelpur manni upp útaf engu?

sko, ég átti kærustu ekki fyrir mjög löngu síðan, vorum saman í 8 mánuði, hún hætti með mér, (það var samt ástæða fyrir því) en samt elskaði ég hana og komst svo seinna að því að hún gerði það sama um mig, og fór ég að tala aftur geðveikt mikið við hana og svo hitti ég hana og svona og svo
byrjuðum við bara saman.
Ok allt var frábært, mér gat ekki liðið betur fram af því
að ég hafði alltaf verið eitthvað í þvílíka “þunglyndinu” uppásíðkastið…
svo bara nuna 3 vikum síðar eða svo, þá bara fæ ég sms um kvöldið og hún bara segir mér upp, segist ekki vita ástæðuna…. :S
what the fu**?
ég meina, hún sagðist elska mig og sakna min og þegar við hittumst vorum við alsæl og ekkert gat verið betra í heimi og svo bara…. ekkert….. ég skil þetta ekki???
mig langar svo að vita hvað gengur eiginlega á hjá henni, (hún er samt ekki manneskja sem ég gæti nokkurntiman trúað því að halda framhjá mér því í alvöru er hún æðisleg stelpa!)

Svo ég byð ykkur sem eru að lesa, hvað haldið þið?

Takk fyri