Halló Takk fyrir að taka stund úr lífi ykkar til að lesa um vandamál mín…….
Ég er stelpa sem er 12 ára gömul. Ég er mjög þroskuð (þó að aðrir séu á öðru máli).
Ég hef bara aldrei sagt neinum það.
Ég er skotin í strák og veit ekki hvað ég á að gera í málunum.
Sumum finnst ég of ung til að eiga kærasta en mér finnst það ekki.
Ég þori ekki að spyrja hann hvort hann sé til í að byrja með mér.
Hann treystir mér, hann sagði mér í hvaða stellpu hann er skotin í og það er ekki ég :(
Ég er ekki einu sinni á topp 5 listanum hans.
Kannski er ég á topp 5 listanum og hann þori ekki að segja mér það.
En ég vill eiga hann og kyssa hann og láta hann vita að ég “elski” hann.
Hvað á ég að gera???
Kær kveðja ein ástfangin