Þú sagðist vera hrifinn af mér,
þú kysstir mig og lofaðir mér,
að þetta myndi endast.
Ætlaðir að enda sambandið sem þú varst í,
því það var að deyja.
Fimm nætur sem allt var fullkomið,
við vorum saman.
Þegar þú hafðir ekki samband í tvo daga
grunaði mig að eitthvað væri að.
Sambandið sem var að deyja,
lifnaði skyndilega við.
Mér var hent út í horn eins og rusli.
Núna er það ég sem er að deyja,
veit ekki hvað ég á að gera.
Heilinn í mér er svo þreyttur á að hugsa um þetta,
en hann vill ekki hætta.
Hjartað mitt er brotið í þúsund mola,
það mun aldrei verða heilt aftur.
Ég fann ástina og hann vildi mig ekki.