Málið er þannig að ég er hrifin af strák og hann virðist allavega líka eitthvað við mig. Ég er ástfangin af honum upp yfir haus og við höfum hisst tvisvar sinnum.
Ég veit ekki hvað ég get gert til að verða í alvarlegu sambandi með honum. Ég get ekki talað við hann því ég er of hrædd um hvernig hann mun bregðast við því og ef hann segir nei þá mun ég gera mig af óendanlegu fífli.
Ég er rosalega feimin við allt í svona ástarmálum og þori ekki að tala við hann nema á MSN og það er alveg glatað. Ég mundi aldrei þora að hringja til hans eða eitthvað álíka nema biðja einhvern annan um að gera það fyrir mig sem er ennþá glataðra.
Mér líður illa með þetta því ég er svo mikið hrifin af honum og mig dreymir hann á hverju kvöldi. Meira að segja á daginn.
Hann hefur beðið mig um að koma til sín en hann á heima frekar langt í burtu (en ekkert það langt) en mamma mín hefur alltaf einhverjar afsakanir um að leifa mér ekki að fara til hans. Ég hef talað um að fá hann hingað en hann finnur líka afsakanir til að geta ekki komið til mín. (Ég held bara að hann nenni aldrei að koma)

Allar vinkonur mínar segja mér hvað við pössum vel saman, við erum með sömu áhugamál og sama tónlistarsmekk og ég held að ég mundi aldrei verða eins ánægð ef við mundum verða saman.

Það sem ég meina er að hvað get ég gert til að heilla hann það mikið að hann mundi kannski spurja mig eða eitthvað álíka?

[Ef þetta er of gelgjulegt eða of óþroskað, haldið því þá fyrir ykkur, ég þoli ekki skítaköst]
Love °Ofurgellur°