“Góður” vinur minn er að reyna við fyrrverandi (ár síðan við hættum) kærustuna mína. Það fer alveg rosalega í taugarnar á mér, sérstaklega af því að hann er að gera það bak við mig. Hann heldur að ég viti ekki, en málið er að hún sagði mér það. Við erum nefnilega alveg ágætis vinir. Einhvern veginn finnst mér hann vera að brjóta einhverja óskráða reglu. Þetta fer alveg rosalega í taugarnar á mér, sérstaklega vegna þess að ef hann myndi spyrja mig hvort mér væri sama myndi ég segja já. Hvað finnst ykkur???