Ég bý í Malmö í Svíþjóð og er í menntaskóla þar. Eins og kanski margir vita býður Svíþjóð uppá margar gellur og það er ótrúlega mikið af flottum og skemmtilegum stelpum hérna. Ég var sérstaklega að fíla eina af þeim, sérstaklega útaf því að hún var hrifin af mér líka.
Í síðustu viku fór í partý heima hjá stelpu sem að tilheyrir hóp af 4 stelpum sem eru allar þessar mega drykkju og reykinga vandræðaunglingarnir. Ég var orðinn ansi fullur þegar að ein þessara stelpna kom til mín og sagðist vilja taka body-shot á mig þar sem hún sleikti salt af maganum mínum, tók body-shot og át sítrónu sem var í munninum á mér. Þetta varð að miklu meira en bara það og við vorumsleikjandi hvort annað í 3 tíma uppí sófa. Þá tók hún í hendina mína og togaði mig inná klósett og sagði “villt þú að þetta verði samband??”. Ég sagði held ég bara “Ég veit ekki….kanski….OK.”. Svo talaði ég við vini mína sem að spurðu hvort það væri ekki í lagi með mig og þeir sögðu “ERTU FÁVITI, hún er svo ljót og hún reykir og hún aldi rétt áður en þú byrjaðir að bora tungunni uppí hana. Ég fattaði það sjálfur á mánudaginn þegar við hittumst í skólanum en þá labbaði hún að mér og kyssti mig. VIÐ VORUM SAMAN!!!
Ég er þannig persóna sem get eiginlega ekki sagt nei og ég á erfitt með að gera eitthvað sem gæti sært annað fólk.
Ég var að býða eftir rétta augnablikinu til að dömpa henni nema hvað hún var alltaf með vinkonum sæinum sem sögðu ”ooo…svo sætt“. Svo ætlaði ég að hitta hana í dag (Laugardagur) og þá ætlaði ég að dömpa henni. Nema hvað í gær ætlaði ég með vinum mínum á klúbb í Malmö (aldurstakmark 16) og ég komst að því að hún ætlaði líka. Ég fór ekki en hún reyndi að hringja í mig mörgum sinnum í gær kvöldi og ég svaraði einfaldlega ekki. Svo sendi hún sms þar sem að stóð ”Þú hefðir getað sagt mér það í skólanum að þú ætlaði að segja mér upp í staðinn fyrir að allir vinir þínir sögðu mér það.“
Já…vinir mínir sem voru á klúbbnum voru greinilega búnir að segja henni allt og segja henni að ég ætlaði að dömpa henni. Nú er hún pissed og ég er búinn að senda henni sms þar sem að ég sagði bara að ég sé ekki tilbúinn fyrir samband. Ég er fúll útaf þessu og líka því að núna veit stelpan sem ég var alltaf svo skotin í að ég ”er" (hún veit ekki að ég sé hætt með henni) með henni og er búin að haga sér eins og hún viti ekki hver ég er.
Þetta voru stærstu mistök sem ég hef nokkurn tímann gert og ég er pirraður :S (Ég er samt glaður að þetta sé búið.

Kv. StingerS