Já þannig er mál með vexti að ég var um daginn með einum strák og við hittumst aðeins helgina eftir það en við gerðum aldrei neitt merkilegt, ég var líka búin að heyra að hann væri player þannig að ég ákvað að passa mig á honum.
Og viti menn, þegar hann vissi af því að hann þyrfti að bíða þangað til að ég myndi sofa hjá honum hefur hann örugglega misst áhugann, því að hann er ekkert búinn að hafa samband síðan. En mér er svo sem sama, við hefðum hvort eð er ekkert passað saman, við erum svo ólík. Ég held bara að ég sé betur sett án hans :D

En svo er eitt annað, strákur sem ég var smá með í sumar og ég tala ekkert við núna er í fýlu út í mig út af algjörum misskilning :( Og ég veit ekki hvernig eða hvort ég á að leiðrétta það. Mér líður geðveikt illa út af því, ég vil ekki að honum sé illa við mig. :S

Fyrirgefið, ég veit að þetta er mjög tilgangslaus korkur en ég vildi bara koma þessu frá mér :)
Ég finn til, þess vegna er ég