ég hef aldrei áður geta sagt jafn réttilega að einhver sé búinn að skjóta sig í fótinn og á við um mig sjálfan einmitt núna!

þannig er nefnilega mál með vexti að ég er alveg yfir mig ástfanginn af vinkonu minni. af því að við erum það góðir vinir þá tími ég ekkert spreða því fyrir eitthvað sem er alveg líklegt að verði ekki; ég efast um að ég eigi neinn voðalegan séns í hana, þrátt fyrir að við séum alveg frábærir vinir.

undanfarið höfum við svo eitt töluverðum tíma saman. og ég var farinn að hafa áhyggjur af því að hana væri farið að gruna eitthvað. þannig að ég “viðurkenndi” fyrir henni að ég væri hrifinn af annari stelpu sem við þekkjum bæði. sú stelpa er reyndar alger engill, þannig að það er í sjálfu sér ákveðinn sannleikur í því.

en núna sé ég MEST eftir þessu, af því það eina sem gerist er að ég verð hrifnari af þessari vinkonu minni.

hin stelpan er í útlöndum, og búin að vera þar meira og minna í allt sumar. hún reyndar væntanleg heim bráðlega… en ég baða mig hreinlega í súpunni!

er ekki einhver þarna úti sem lumar á óbrigðulum gullmola til aðstoðar einum feitum albínóa í vanda?</p
-I don't really come from outer space.