Þannig er mál með vexti að ég er ansi hrifinn af einni stelpu sem er með mér í bekk (mjög fögur og skemmtileg).
Ég hef það sterkt á tilfinningunni að hún sé sama sinnis um mig. Ég er hreinlega alveg patt í stöðunni hvað ég á að gera. Mig langar mikið að segja henni beint út að ég er hrifinn af henni, en óttast að fá neikvætt svar úr hennar vörum.
Þarfnast sérfræðinga hérna
“ Þar sem koma fleiri en tvö tré, þar er skógur ”.