Góðan daginn.
Þannig er mál með vexti að ég hef verið í sambandi með yndislegri konu. Nú er hinsvegar komið babb í bátinn, það eru þessi gamalkunnu fjármál(sem allir þekkja).
Við eigum aldrei pening og erum þessvegna mestmegnis heima og höfum ofan af fyrir hvort öðru.
Bara svo að það sé á hreinu þá ber ég gríðarlega sterkar tilfinningar fyrir þessari konu, og ég vill alls ekki þurfa að særa hana að ástæðulausu.

Ég hef verið að velta því fyrir mér hvort ekki sé betra að slíta sambúð í smá tíma c.a. 3-5 mán á meðan að verið er að vinna í fjármálunum, og koma svo miklu sterkari til baka.

Ef ég sting uppá þessu er ég þá að hætta með henni?

Ef einhver veit um einhverjar aðrar leiðir vinsamlegast að setja inn comment.

Ég veit ekki hvað ég á að gera!!!!
Panic, disorder, mayhem my work here is done!!