Jæja, ég veit ég skrifaði hérna um daginn um drykkjuvesen……já og ég held að mesta vesenið hafi verið ég, því ég var alveg í klessu í gær en kallinn ekki :D

Hann var bara að passa uppá mig, og núna veit ég að hann elskar mig alveg helvíti mikið því hann fór að tala við vinn sinn um það að hann mundi bara fylgja mér og fara þangað sem ég vildi fara og eitthvað þegar vinur hans var að tala um það að senda mig bara heim með leigubíl og þeir færu svo að djamma meira :)

Svo fór hann að spurja vin sinn hvort hann mundi gera það við sína kærustu (ef hann ætti) og hann sagði já!
þá sagði kallinn minn: “Já sjáðu til, að þá mundirðu ekki elska hana af öllu hjarta því ef þú elskaðir hana virkilega þá færiru með henni heim”

Úff, ég vaknaði illa og var alveg að drepast……og kallinn hugsaði um mig í allan dag :)

Held og vona innilega að þetta blessist allt hjá okkur þrátt fyrir óhóflega drykkju hans…..
"All we have to decide is what we do with the time that is given to us"