Góðan daginn

Ég hef verið hrifinn af stelpu í mjög langan tíma en aldrei þorað að viðurkenna það fyrir henni og varla fyrir neinum. Við erum ágætis vinir og tölum oft saman og allt þannig. Núna er ég alltaf að reyna að manna mig upp í að bjóða henni í bíó eða eitthvað en ég er bara hræddur um að hún taki því eitthvað illa og vinasamband okkar verði rosalega vandræðalegt. Hvað á ég að gera?

P.S. Við höfum bæði litla reynslu af ástarmálum