Líklega er þetta bara þetta venjulega væl, en ég er 16 ára og reynslulítill í stelpumálum. Málið er að þegar ég er aðeins í því þá er allt auðvelt en svo verð ég alveg “máttlaus” í þessu venjulega. Feimni? já auðvitað, en hvað getiði sagt við þá sem eru feimnir til að reyna að laga feimnina? Svo er annað, hvenær finnst ykkur að strákur eigi að “draga sig i hlé” og bíða eftir viðbrögðum? Hversu mikið þarf strákur að gefa það í skyn að hann hafi áhuga á stelpu?

Endilega segið ykkar skoðanir.