Ég á dálítið erfitt með að skrifa þetta, þar sem þið eruð jú öll ókunnug, en ég ætla nú samt að reyna á það. Mitt “vandamál” er svona:
Ég á marga vini. Ég á mjög auðvelt með að eignast vini, þar sérstaklega vinkonur. Flestir væru mjög sáttir með það, sem og ég er. En svo kynnist ég stelpum sem að ég verð hrifinn af, og eitt leiðir af öðru og við verðum alveg æðislega góðir vinir, og þá kemur að kossinum sem að ég er búinn að vera að bíða eftir svo lengi. Kannski að það sé ekki einusinni koss, kannski bara augnaráð. Svona augnaráð sem að manni langar að festa á mynd, og geyma það sér í hjartarstað að eilífu! Ég ber svona tilfinningar til ákveðinnar manneskju og ég veit að henni þykir vænt um mig líka. Gallinn er sá að allar stelpur sem að ég vingast við vilja einungis vera vinir mínir, ekki þessi venjulegi strákavinur heldur svona “stelpuvinur”, þessi sem að þú ferð með í kringluna að versla föt og segja þér hernig að þú lítur út í hinum og þessum fötum(sem að er býsna kaldhæðið miðað við að ég hef engann fatasmekk), við förum í bíó og saman í partý, til vina okkar, að versla og út að borða. Þessi kærasta týpa, en án þessarar ástúðar sem að ég sækist eftir. Ég fékk það í andlitið nú fyrr í kvöld, frá þessari ákveðnu manneskju sem að ég reyndi að kyssa að hún gæti ekki mögulega ýmindað sér að kyssa mig, henni liði einsog að hún væri að kyssa bróður sinn. Hún veit áreiðanlega ekki af því, en ég er alveg í rusli útaf þessu, því að ég er ástfanginn uppfyrir haus af þessari stelpu, en nú veit ég ekki mitt rjúkandi ráð! Ég faðmaði hana ég kyssti hana á kinnina einsog að ég geri alltaf þegar að ég kveð vini mína og þá hvíslaði hún svo í eyrað á mér “ég vildi óska að ég ætti fleiri vini einsog þig” Það lá við að ég brysti í grát því að sorgin er svo mikil! Ég elska þessa manneskju af öllu mínu hjarta og ég væri reiðubúinn að gera hvað sem er fyrir hana! En ég verð víst að leggja þetta til hliðar einsog ég hef oft reynt áður, en ég vill spyrja ykkur, hvað geri ég vitlaust? Er ég ekki þessi kærastatýpa eða þyrfti ég að breyta framkomu minni gegn konum? Hvað er að mér??