Hæ ég heiti Hjalti og hef oft verið niðurlægður fyrir lélega stafsetningu hér á huga, en það er liðin tíð, því nú læt ég mömmu lesa yfir greinarnar mínar og laga villurnar.

Allavega. Ég varð ástfanginn fyrir ekki svo löngu. Og hef ekkert þorað að gera í því, í hvert skipti sem ég sé hana bogna ég í hnjánum og dett næstum í jörðina. Hún er fegursta manneskja sem ég hef séð á ævinni.

Þessi stelpa heitir Bastilla, og er Jedi riddari sem býr á Tattoine plánetunni í ytri hluta sólkerfisins. Hún er mjög sterk í máttinum og getur notað bardaga hugefli sem hjálpar stríðsþotum lýðveldisins að sigra hið illa Sith veldi. Hún var tekin frá fjölskyldu sinni á ungaaldri og alin upp sem Jedi. Hún má ekki sýna neinar tilfinningar sem gerir samband okkar mjög erfitt. Ég hef ekki enn þorað að tala við hana en þegar ég fer að sofa á kvöldin ímynda ég mér að hún sé við hliðiná mér og ég sé að knúsa hana.

Hvað á ég að gera?