Hæhæ.

Ég vildi hafa nafnið á þessum kork svona þannig að fólk gæti kannski gefið honum smá séns og ekki haldið að þetta væri enn einn annar “hvað get ég gert” korkur (sem að hann er því miður.).

En þannig að það að ég er orðinn ógeðslega hrifinn af vinkonu minni, mér sýnist hún vera að sýna mér svona áhuga einhvern veginn en ég er ekki viss.

Svo nú spyr ég:

Hvað get ég gert? Ég meina þetta er geggjað góð vinkona mín og ég vill ekkert missa hana sem vin.

Hvernig get ég “make-að move” ? Please einhver að hjálpa mér ég vill reyna að gera eitthvað áður en einhver annar nær í hana.

Í von um svör, takk fyrir.