Ok, mig vantar smá hjálp. Málið er þannig að ég svaf hjá kærasta bestu vinkonu minnar á fylleríi og eftir það er ég orðin hrifin af honum. Ég veit það alveg að ég á meiri séns en hún og það er ljótt af mér að stinga undan henni, en ég verð að ná í þennan gaur ég er svo ástfangin af honum og ég held að það sé gagnkvæmt. Hvernig get ég náð í hann án þess að það verði eitthvað mikið vesen og leiðindi?