Þetta atti ekki að vera svona langt en ég byrjaði að skrifa og gat ekki hægt.. Þið þurfið ekki að spara skitköstin en það væri lika ágætt að fá svör eða eitthvað bara..

Eg er nyhættur með kærustunni minni. Bara nuna stuttu eftir er eg byrjaður að kynnast einni stelpu betur sem mer hefur alltaf lyst a. Það er eitthvað við hana sem lætur mér líða svo vel svona eins og við eigum að vera saman. En eg er nýhættur med fyrrverandi svo ég er mjog tregur i að reyna eithvað mikið við þessa stelpu..

Hún er mjög falleg og skemmtileg og med mjög sérstakan persónuleika (a goðan hatt) og a slatta af stráka vinum. Einn þeirra segir mer ad hun se med ahuga á mér og hefur haft i dalitinn tíma en ég veit samt að það eru nokkrir strakar ad spa i henni sem ég held að þekkja hana betur en eg.

Hun hefur alltaf verið svo skemmtileg og opnar sig alltaf við mig þegar við tölum saman. Það kom mer a ovart þegar við byrjuðum að tala um ýmsa hluti hvað hun sjálf og hennar skoðanir voru svo fjarri þvi sem maður hefði haldið að hún væri þegar maður þekkir hana ekki. Hún er mjög sérstök og við tölum um hluti sem ég hef eiginlega aldrei talað um við aðra stelpu.. og aldrei hefur mer liðið svona vel þegar eg tala um svona hluti við stelpu.

En það er eins og hun er dalitið treg i að hitta mig og svona, við kannski tölum saman mjög mikið og svo allt i einu næsta dag þa er eins og hun se buin að draga sig i hlé eða eithvað.
Hun hefur sagt að hun hefur ahuga a mer en svo allt i einu lætur hun eins og hun hafi litinn ahuga eða eingann.

Eg vil ekki virðast of æstur i ad komast aftur i samband og fæla hana fra þvi að hún virdist ekki vera þannig manneskja sem vill svona vera alltaf i sambandi en eg get ekki hætt að hugsa um hana og hvort að hun se med ahuga fyrir öðrum og hafi bara verið að spila með mig.. Ég þoli ekki þegar hun talar um einhverja straka þott þeir seu bara vinir hennar og þegar hun hengur með öðrum strakum. Ég vil svo oft hringja i hana og heyra i henni og við erum ekki i sama felagsskapnum og mer finnst oþægilegt þegar hun er kannski með einhverjum strakum eða eithvað..Við þekkjumst ekki það mikið en mer finnst eins og ég þekki hana eins og lofann á mer.

Það er eins og hun er ekki viss hvað hun vill eða hun sé bara að spila með mig. En hun er svo sérstök og eg er buinn að segja við hana að eg vil vera með henni eða allavega reyna á það og þá sagði hun að henni langaði það lika en svo er eins og ekkert gangi hja okkur..eins og hun nenni ekki að gera eitthvað i þvi.. ég get ekki hætt að hugsa um þessa stelpu. Þessi stelpa er eitthvað sem ég vil ekki gefa upp á bátinn utaf þvi að það er kannski erfitt að ná i hana

Hvað á eg að gera? Ég vil ekki yta á hana eða vera hnýsinn og svona en eg þoli þessa óvissu varla lengur…