AIT, ok ég fór á útihátíð um helgina og smellti mérí sund þar rétt hjá á Laugardagsmorgun, á leiðinni úr sundi vorum við félagarnir að spjalla við stelpur sem við þekkjum og voru þær e-ð að vandræðast með að þær væru svangar (voru kannski að vonast eftir því að þeim yrði boðið í mat á hótel eddu sem var þarna). Við buðum þeim í morgunmat, létum þær aka á eftir okkur í átt að hátíðinni og fundum fallegan læk sem við röltum meðfram þar tilað við fundum ásættanlega laut til að snæða morgunmat.
Morgunmaturinn samanstóð af Síkíta safa, ostlíki með cheddar bragði, tómötum, jarðaberjaBIOmjólk og Kastala (ostur). Þetta var algerlega óundirbúið en allir voru þvílíkt sáttir við þessa ferð og veðrið hjálpaði nú líka smá.

Spurt er:
Er þetta rómantísk lautarferð?
Hvað á að gera næst?
Er e-ð rómantískt við það að éta tómata með og annað án þess að vera með tilheyrandi áhöld?

Jón Gunna