Ég ætla bara að vara þá við sem eru að fara að lesa þetta að þetta er demba af því hvað þetta var glataður dagur hjá mér…En jæja:

ath-laaaaangt!

Ég hitti stelpu á sunnudaginn og var eitthvað með henni og vinkonum hennar og vinum og allir orðnir vinir og svoleiðis.
Allaveganna var þessi stelpa það skemmtileg, og það falleg að þegar ég sá hana fyrst einhvernveginn varð ég bara alveg í shokki og sagði bara “Vá” aftur og aftur við sjálfan mig.
En ég vissi að þetta var svona stelpa sem ég væri eftir að gleyma eftir dag, en ég hugsaði um hana næstu daga.
Svo voru allar vinkonur hennar að segja að hún gæti ekki hætt að tala um mig, að hún vildi alltaf heimseækja mig þegar þær væru úti saman, vildi alltaf fara á msn til að gá hvort ég væri þar, og ef ekki færi hún strax útaf. Svo var ég og þessi stelpa að sendah voru sms langt fram á nótt, og var þetta í fyrsta skipti sem ég hef verið þetta brjálæðislega ástfanginn af stelpu sem hefur líka verið mjög hrifin af mér (Er ekkert beinlínis vanur þannig athygli frá stelpum) þannig að mér fannst frábært að hún var hrifin af mér.
En svo í gærkveldi var ég með henni og nokkrum vinum ('áður um daginn höfðum við verið að hanga heima hjá mér bara ég og hún) og vinkonur hennar sögðu mér bara að byrja með henni strax því hún væri hreint út beint að brjálast í mig, og ég var ekkert smá glaður. Í morgun ætlaði ég að hitta hana og fara að spyrja hana bara beint hvort hún vildi vera með mér (Ég læt þetta hljóma dáldið skringilega).
Þá sagði vinkona hennar á msn við mig að hún væri líka hrifin af öðrum gaur og að hún vissi ekkert hvað hún ætti að gera. Að ég væri þessi fyndni og skemmtilegi sæti strákur (Ég sé mig ekki sem sætan, þess vegna er ég ekki vanur þessu eins og ég sagði fyrir ofan), en að hinn gaurinn er víst eikker rosalegur lúkker.
Restina af deginum lá ég á gólfinu heima hjá mér og hlustaði á sama sorglega lagið aftur og aftur, og mér leið ótrúlega illa þegar ég sast í stólinn minn og fann lyktina af ilmvatninu sem hún var með þegar hún sast í stólinn….

En já….Mér líður einmitt núna eins og ég sé eitthvað svo tómur og dett bara inn í störu á vegg af því að hugsa um hana.

Theeee End…..Takk fyrir að lesa