Ég spyr bara er þetta bíb áfengi eina leiðin til að losna við feimni?
Ég er venjulega ekki feiminn þegar ég er að tala við fólk en þegar það kemur að því að tala við stelpu (reyna við) þá kemur feimnin, eins og ég sé eitthvað hræddur um að fá neikvætt svar,
kannski að viðkomandi stelpa sé á föstu eða eitthvað álíka skemmtilegt.

Svo er ekkert erfiðara en að byrja að tala við einhverja bara uppúr þurru um eitthvað (haaa er þetta gott súkkulaði þarna uppí hillu eða ekki ;) )

Hver er besta leiðin til að ná sér í gellu?
Ég drekk ekki svo ég er lítið á böllum en hef þó kikt við.

Æjj þetta er pinku asnalegt að skíra frá þessu en kannast einhver við eitthvað svipað?
Hvað er til ráða…láta bara vaða :Þ