Jæja, ókei, ég er strákur og þetta er um stelpu. Þessi stelpa á heima í rvk og ég á heima út á landi, hún kemur alltaf hingað um verslunarmannahelgar, hverja verslunamannahelgi. En jæja, um síðustu verslunarmannahelgi kom hún og þegar ég sá hana var þetta í rauninni ást við fyrstu sýn, en ég gerði ekkert í því, og svo fór hún aftur til rvk. Hingað til hef ég hitt hana nokkrum sinnum í rvk og svona, og ég verð bara meira og meira ástfangnari af henni í hvert skipti sem ég sé hana. Jæja og nú er hún komin hingað útaf verslunarmannahelginni. Hún er fallegri en nokkurntíman, mjó, flott brjóst, hár, persónuleikinn góður og allt. Ég veit ekkert hvort hún sé eitthvað hrifin af mér eða eitthvað, eina sem ég veit er að hún er hrifin af vini mínum, þau labba alltaf hlið við hlið, haldast ekki í hendur eða neitt. En jæja í kvöld fórum við til hans, og eftir smá stund voru þau komin upp í rúm og héldu utan um hvort annað og svona, en þau kysstust ekki eða neitt svoleiðis. Ég bara get ekki hugsað mér að þau séu saman því þá verður hann alltaf að tala um hana og ég veit að ég á eftir að springa í eitt skiptið. Ég bara skil hana ekki því að ég og hún höfum sama tónlistasmekk, sama húmor, höldum uppi umræðuefni og allt. En hún og vinur minn hafa allt annann tónlistasmekk, sama með húmorinn og alltí lagi með að halda uppi umræðuefni. Mér langar svo að segja henni hvað mér finnst en ég er hræddur um að þetta berist um bæjinn(þetta er lítill bær svo það yrði fljótt að berast út). Ég hef ekki sofið eina nótt útaf þessu og get bara ekki hætt að hugsa um þetta, ég sendi henni sms og spurði hvort eitthvað hefði örugglega ekki gerst heima hjá honum og hún sagði ekki neitt, hún sagðist ætla að láta hann bíða. Svo spurði ég hvort hún ætlaði ekki samt að gera það, hún sagði “ég veit ekki”.. og að lokum spurði ég hvort hún væri hrifin af honum og hún sagði já. Miðað við þetta treystir hún mér líka, sem mér skilst að sé mikill partur af sambandi.
Ég veit að strákarnir allavega hérna segja að ég sé aumingi og eitthvað, en mér er sama.. og ég veit alveg að ég er alveg “upsest”(kann ekki að skrifa), alveg “upsest” af henni. En ég bara kemst ekki yfir hana og að hún yrði með honum, og að sjá þau haldast í hendur

Nú spyr ég, er eina ráðið að segja henni hvað mér finnst? eða get ég gert eitthvað annað?<br><br>¡ Mistake is only a proof that youre trying ç
Ding Ding Ding!