Sæl,

Ég hef verið verulega niðurdrepandi undanfarna daga og ég er farinn að halda að ég sé þunglyndur. Ég tók þetta þunglyndispróf sem er á doktor.is og ég fékk 52 stig sem er talið við hættumörk sem mér finnst alveg hræðilegt. Ég veit líka afhverju mér líður svona ílla en það er útaf bestu vinkonu minni. Við erum nýkomin úr ferðalagi, ég hún og nokkrir aðrir félagar mínir en í þeirri ferð undir restina var hún farin að umgangast mig eins og skít. Allt sem ég sagði og gerði var rangt og ég var bara mesta fífl og fáviti og ég veit ekki hvað. Ekki dæma hana útaf þessu því einhvernvegin grunar mig að þetta hafi gerst útaf við erum búin að vera allt of mikið saman. Málið er að ég er bara alveg ráðalaus hvað ég á að gera því ekki get ég hætt að umgangast hana því ég vinn alla daga með henni.

Endilega komið með einhver svö