er það þvílíkt diss að vilja kynnast þeirri sem maður er hrifinn af áður en maður vill fara uppí rúm saman ?
ég er í raun alveg að deyja útaf þessu, búinn að hitta hana nokkrum sinnum, höfum þekkst lengi, og ég er að bjóða henni heim, það sem ég væri þvílíkt ánægður með væri að glápa á ræmu (vídeóspólu, sem ég ætla að stinga uppá) og kela smá. kannski furðulegt að heyra þetta frá strák, en ég hef brennt mig á þessu áður, vil ekki hætta á að eyðileggja eitthvað gott sem gæti orðið æði ef það fær að stækka við sig á rólegum hraða, ég vil eitthvað meira en bara nokkur kvöld af bólförum og búið. Ábyggilega furðulegt að ég sé að spyrja að þessu, en ég spyr ykkur stelpur, ef þið færuð heim til stráks sem þið eruð í raun ekki ennþá byrjaðar með og væruð það hrifnar af honum að þið væruð alveg til í að fara í rúmið með honum, og ef hann segist ekki vilja það strax, væruð þið alveg þvílíkt dissaðar ?