Halló…
Ég sit hérna í rökkrinu, og er að bíða þín.
Ef þú kemur, þá kasta ég mér á þig, og bið þig um að eyðast upp með mér. Ég gef þér hjarta mitt; vefðu vír þínum utanum það.
Brögðum á bitrum mistökum og snertum gróin ör hvors annars. Andaðu í takt með mér, finndu strauminn, og vertu við hlið mér.

Öskraðu með mér…