hvernig er það með ykkur fólk í sambandi? hvar í forgangsröðinni er lífsförunautur ykkar og hver er viðeigandi staðsetning manns á þeim lista? auðvitað getur listinn breyst eftir aðstæðum, sérstaklega þegar kemur að sjúkdómum og einhverju í þeim dúr en svona almennt þá myndi maður ætla að sé í top 2 sætunum á eftir fjölskyldunni eða forráðamanni. en þegar maður er að fara að halda upp á heilt ár í sambandi sem er nú fyrsta stóra skrefið þá finnst manni soldið lélegt að þurfa að breyta plönunum sínum af því að vinkona/vinur hins aðilans fékk þá hugdettu að skreppa í bíó en finnur engann til að skreppa með sér!!! stendur eitthvað á milli línanna sem maður er ekki að fatta??? -einn sem er ekki að fatta