hæ hæ
ég er mjög hrifin af einu stráki köllum hann x . ég hef verið hrifin af honumn í 1 ár. Enn fyrst var ég hrifin af vini hanns köllum hann z í 2 ár. Þegar ég var hrifin af z var x hrifin af mér enn ég vissi það ekki ég vissi það ekki fyrr enn bara nýlega og er alveg ráðalaus. Núna hata ég z því hann er ógeðslega leiðinlegur við mig enn x er rosa góður við mig vill alltaf hitta mig fara með mér í bíó og solleiðis enn ég verð alltaf svo feimin í kringum hann. Alltaf þegar við hittumst þá erum við alveg að daðra soldið. Enn svo þegar ég byrja að huxa afhverju ætti hann að vera hrifinn af mér?? Hann er oft að koma við mig fyrir enga ástæðu og kitla mig og strjúka á mér hendina. Sem mér finnst svo notalegt enn þegar ég ætla að gera einhvað við hann þá finnst mér hann alltaf ekki vilja það. Veit ekkert hvað ég á að gera. Hef sko sagt honum að ér hrifin af honum og hann veit ða alveg.
Viljiði koma með einhver ráð??
Hugarar hjálpið mér :)

Kveðja Stelpan sem veit ekki hvað hún á að gera……