ég veit ekki með aðra en svona er ég!
Ég hitti kannski strák..fíla e-ð við hann..en samt finnst mér hann alls ekki vera mín týpa! Verð e-ð skotin..en samt ekki mjög mikið!..þegar ég er með honum er ég að velta því fyrir mér hvort að ég eigi nokkuð að vera að standa í þessu..því að hann sé ekki svo mikið mín týpa..það eru alltaf einhverjir gallar sem ég er ekki að fíla í fari hans..en þegar ég er ekki með honum verð ég skyndilega svakalega hrifin og geri ekki annað en að kíkja á símann minn eftir sms-i frá honum! Þegar hann sendir verð ég mjög ánægð..en þegar hann senir ekki fæ ég líka svakalegan áhuga.. Þetta pirrar mig því ég veit aldrei hvað ég vil.. ég er svakalega óákveðin..þegar ég dúlla mér með strák finnst mér það óþægilegt því að ég vil vera frjáls..en samt þegar ég er á lausu langar mig líka að hafa einhvern góðan strák sem að hugsar um mig..ég veit alls ekki hvað ég vil..og það er frekar óþægilegt..! Kannski er ég alls ekki tilbúin í að vera í sambandi!
Fattar einhver hvað ég er að tala um?? Það er frekar erfitt að koma þessari pælingu minni í orð..en ég reyni þó!
endilega svariði..:)