Komiði sæl,

Málið er að ég er búinn að vera hrifinn af þessari stelpu klikkað lengi, hún er ein besta vinkona mín og við getum gjörsamlega tala um allt saman. Við erum svona hálfpartinn “trúnaðarhjón”. Eins og ég sagði þá er ég búinn að vera hrifinn af henni í svona ár og hún veit að því en þar sem hún er ný komin úr sambandi þá sagðist hún ekki vera tilbúin í annað samband. Ég vildi auðvitað ekki þrýsta að henni of mikið svo ég varð bara góður vinur hennar eftir það. En nú er það vandamálið, hún er byrjuð með þessum strák sem hún er búin að hitta voða lítið. Strax og hún sagði mér þetta sem var auðvitað mjög erfitt fyrir hana þá sárnaði mér mjög og varð hálf öfundsjúkur því hún er alltaf talandi um þennann gaur.

Nú bara spyr ég ykkur kæru huga notendur hvað ykkur finnst að ég ætti að gera? Ég er alveg í þessu ömurlega skapi og ég get ekki hætt að hugsa um hana.

- Búálfurinn