ohh… þetta er svolítið snúið. Ég veit ekki hvar ég á að byrja! En sko, þannig er þetta að það kom nýr strákur í bekkinn í haust og hann er rosalega skemmtilegur, fyndinn og góður og við erum góðir vinir. Hann er svona Nirvana-AC/DC-KoRn-Metallica-fíkill sem er í fínu lagi því að ég fíla þetta líka. Geggt flottur með svona rokkara hár (ljóst með brúnni rót). Algjör rokkari og er bara geggt flottur.. =) Hann situr fyrir aftan mig í flestum tímum og við erum alltaf eitthvað að hlæja og svoleiðis.. Málið er að ég er orðin svolítið hrifin af honum en veit ekki hvort hann er hrifinn af mér.. en hann er samt alltaf eitthvað að tala við mig og svona ;) En bara ég veit ekki alveg hvernig þetta er ef þið skiljið..hvað á ég að gera til að vita hvort hann sé hrifinn af mér eða á ég kannski bara að hætta að hugsa um hann eða hvað?? Og please ekki segja mér að ég eigi bara að tala við hann um þetta því að það er hlutur sem ég myndi aldrei geta gert!! Ég er svo rosalega feimin!!<br><br>Kv. Arkano
-Arkano