Hæ… ég er stelpa í 10 bekk úr Reykjavík (hvar annars staðar)? en já ég er allavegna ótrúlega “hrifin” af strák í 9 bekk. Við vorum í svona sleep over um daginn í skólanum og ég var alltaf að spá í að fara að tala við hann en þorði ekki! veit geðveikt ömulegt! Já allavegna þá er þessi strákur algjert beip, og allir segja að hann sé mjög skemmtilegur! ég þekki hann ekkert mikið sko… en langar að kynnast honum milljón sinnum meira.

Síðan var árshátíðin okkar seinast (næstseinasta ballið á árinu) og það kom VANGALAG og ég labbaði til stráksins og ætlaði að bjóða honum upp en nei ég þorði ekki, og hann fór að venga við stelpu í 9 bekk!

<b>en strákar og kannski líka stelpur! já ef þið hafið einhverja reynslu af þessu! Hvernig mynduð þið bregðast við ef þessi venjulega stelpa í 10 bekk, ekkert sæt og ekkert ljót, bara eins og flestar aðrar myndi labba að ykkur og “hözzla” ykkur, og hvernig er best að hözzla þessa stráka</b>

<br><br> -Það er ljótt fólk sem heldur fram að fegurðin komi innan frá
-Það er ljótt fólk sem heldur fram að fegurðin komi innan frá