Þannig er málið að ég er búinn að vera með stelpu í eitt og hálft ár enn núna um helgina hætti hún með mér á afmælinu mínu í þokkabót þetta er búið að vera storma samt samband. Oft búinn að hætta saman. enn núna var hún að meina það. svo í gær kom hún alltí einu heim til mín og bað mig um að hjálpa sér að læra og svoleiðis, svo daðraði hún og daðraði endaði með að ég kyssti hana og hún kyssti á móti. þannig ég spurði hana hvort við værum saman þá svaraði hún nei. svo í morgun þurfti ég að koma við hjá henni að ná í eithvað dót og aftur byrjaði þetta nema núna sváfum við saman þá var ég viss um að við værum byrjuð aftur saman. Ég keyrði henni í skólan og spurði hana hvort ég mætti kyssa hana bless þá sagði hún nei við erum hætt saman megum ekki gera neitt á almannafæri, og þú mátt ekki segja neinum að við sváfum saman og kysstumst er bara okkar mál vill ekki að neitt viti það. Skil þetta ekki alveg skammast hún sín fyrir mig? eða hvað er í gangi getur einhver svarað því ?
Wiruz!!!!!!!!!!!